Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 30. apríl 2016 17:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deeney: Vinur minn elskaði þetta örugglega
Deeney skoraði tvisvar
Deeney skoraði tvisvar
Mynd: Getty Images
Troy Deeney, fyrirliði Watford, var að vonum mjög ánægður eftir 3-2 sigur liðsins á Aston Villa í dag.

Deeney er uppalinn hjá Birmingham, en mikill rígur er á milli Birmingham og Aston Villa og því má segja að sigurinn hafi verið ennþá sætari fyrir Deeney.

„Besti vinur minn er harður stuðningsmaður Birmingham og því hefur hann líklega elskað þetta. Hann sagði mér að gera Villa lífið leitt,“ sagði Deeney sem skoraði tvennu seint í leiknum.

„Það tók smá tíma fyrir okkur að komast í gang, en við náðum sigrinum í lokin.“

„Villa á skilið hrós, þeir skoruðu tvö góð mörk. Við vorum slakir og við getum ekki falið það, en á síðustu vikum höfum við verið að spila vel án þess að fá góð úrslit.“

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner