Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2016 14:24
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Haukar gerðu sjö á Akureyri
Heiða Rakel Guðmundsdóttir setti þrennu í stórsigri Hauka.
Heiða Rakel Guðmundsdóttir setti þrennu í stórsigri Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Völsungur 0 - 7 Haukar
0-1 Hildigunnur Ólafsdóttir ('4)
0-2 Hildigunnur Ólafsdóttir ('20)
0-3 Heiða Rakel Guðmundsdóttir ('40)
0-4 Heiða Rakel Guðmundsdóttir ('41)
0-5 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('49)
0-6 Helga Siemsen Guðmundsdóttir ('83)
0-7 Heiða Rakel Guðmundsdóttir ('88)

Það var sannkölluð flugeldasýning er Völsungur mætti Haukum í undanúrslitum Lengjubikars kvenna á Akureyri.

Gestirnir úr Hafnarfirði voru komnir yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik með marki frá Hildigunni Ólafsdóttur sem bætti öðru marki við stundarfjórðungi síðar.

Heiða Rakel Guðmundsdóttir gerði tvö mörk á tveimur mínútum skömmu fyrir leikhlé og bætti svo þriðja marki sínu við á lokamínútunum þegar hún gerði sjöunda mark leiksins í stórsigri.

Haukar mæta annað hvort Keflavík eða HK/Víkingi í úrslitaleiknum.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner