Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. apríl 2016 16:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: ÍBV lagði Blika í úrslitaleik
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
ÍBV 3 - 2 Breiðablik
1-0 Cloe Lacasse ('3)
2-0 Lisa-Marie Woods ('11)
3-0 Rebekah Bass ('25)
3-1 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('27)
3-2 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('85)

ÍBV vann Lengjubikar kvenna í ár eftir sigur í úrslitaleik gegn sterku liði Blikakvenna.

Close Lacasse, Lisa-Marie Woods og Rebekah Bass komu Eyjakonum í þriggja marka forystu á fyrsta fjórðungi leiksins en Andrea Rán Hauksdóttir minnkaði muninn skömmu síðar.

Gestirnir frá Kópavogi reyndu að minnka muninn frekar en það hafðist ekki fyrr en Andrea Rán bætti öðru marki sínu við á 85. mínútu, en það reyndist of lítið of seint og er ÍBV Lengjubikarsmeistari 2016!
Athugasemdir
banner
banner
banner