Heimild: KSÍ
Ísland 3 - 2 Svíþjóð
Mörk Íslands: Birkir Heimison 2, Viktor Andrason.
Mörk Íslands: Birkir Heimison 2, Viktor Andrason.
U17 ára landslið karla vann í dag góðan 3-2 sigur á Svíþjóð á UEFA-æfingarmóti sem fram fer í Finnlandi. Ísland leikur í riðli með heimamönnum, Svíum og Rússum.
Leikurinn í dag var æsispennandi en Birkir Heimisson kom Íslandi í 1-0 með marki á 32. mínútu. Svíar skoruðu þá tvívegis og komust í 2-1 en strákarnir létu það ekki slá sig útaf laginu.
Birkir Heimisson jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 62. mínútu og Viktor Andrason skoraði svo sigurmark leiksins á 71. mínútu.
Góður 3-2 sigur í fyrsta leik Íslands en næsti leikur er gegn Finnum á mánudaginn.
Athugasemdir