Arnór Smárason lagði upp annað marka Torpedo Moskvu í 2-0 sigri á Mordovya í dag en það var lítið fagnað hjá hans mönnum því fall úr deildinni var niðurstaðan eftir daginn.
Arnór átti frábæran sprett undir lok leiksins í dag, lék á tvo varnarmenn en skaut í stöng.
Félagi hans fylgdi vel á eftir og tryggði þeim 2-0 sigur.
Slæmu fréttirnar eru þær að það nægði ekki og þar með eru þeir fallnir.
Rússneska deildin byggir á skrítnum reglum þar sem unnir útileikir skipta máli í hvaða lið fellur.
Athugasemdir