Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 30. maí 2015 19:30
Baldvin Kári Magnússon
Brynjar: Eins og harðfiskurinn sem ég er að borða
Brynjar er hér til hægri
Brynjar er hér til hægri
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Eigum við ekki að segja að við höfum verið sparkaðir út úr leiknum. Við fengum bara fullorðinsbolta. Við vissum það nákvæmlega fyrir leikinn hvernig bolta við værum að fara í, menn fengu allar upplýsingar sem þeir þurftu. Að þetta yrði bara sparka langt og seinni bolti. En við höndluðum það ekki.“ Sagði Brynjar Gestson þjálfari Fjarðabyggðar eftir 2-0 tap gegn Þór.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  0 Fjarðabyggð

„Það var allt skipulag klárt fyrir það. Menn eru að kvarta yfir því að völlurinn sé ekki sleginn. Ef þú getur ekki spilað á vellinum. Þá endar þú bara í sama boltanum og hverjir voru grimmari í dag á alla bolta? Það var Þór.“

„Við vorum bara eins og barinn harðfiksur sem ég er að éta hérna núna. Við vorum teknir í góða kenslustund í því að taka á og ég held að við höfum bara haft ljómandi gott af þessari kenslustund í dag.“

Fjarðabyggð er með 6 stig eftir 4 leiki. Aðspurður um hvort það væri sanngjarnt miðað við spilamennsku sagði Brynjar:
„Já ég held það. Við erum búnir að lenda í einhverjum hremmingum þarna í byrjun. Leikurinn á móti KA heima, það er leikur þar sem við sköpuðum okkur alveg helling af færum í og hefðum kanski átt að fara með sigur af hólmi. Þetta er bara það sem maður vill. Maður þreifst á þessu sjálfur. Kontakt og látum og svona. Maður var næstum því búinn að reima á sig skóna sjálfur hér í dag og drullast inná.“

Þetta áhugaverða viðtal má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner