Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. maí 2015 08:15
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Fylkismenn heimsækja útvarpsþáttinn í dag
Á X977 á laugardögum milli 12 og 14
Oddur Ingi Guðmundsson.
Oddur Ingi Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Það er stór fótboltahelgi framundan og af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem er í dag 12-14 á X-inu FM 97,7 eins og alla laugardaga.

Forsetakosningar hjá FIFA, bikarúrslitaleikur á Englandi og heil umferð í Pepsi-deildinni verða meðal umræðuefna.

Fylkir er að fara að keppa gegn Val á sunnudagskvöld en við gefum á gestalista á leikinn í samstarfi við Árbæinga.

Oddur Ingi Guðmundsson og Ragnar Bragi Sveinsson, leikmenn Fylkis, kíkja í heimsókn í þáttinn.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner