Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrra mark Horsens í 2-2 jafntefli gegn Vejle í dönsku B-deildinni í dag.
Kjartan jafnaði 1-1 á 57. mínútu leiksins.
Kjartan hefur núna skorað sex mörk í síðustu sex leikjum með Horsens en hann hefur verið í miklu stuði að undanförnu.
Horsens er í 7. sæti dönsku B-deildarinnar þegar ein umferð er eftir þar í landi.
Athugasemdir