Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. maí 2016 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Aubameyang ekki á förum frá Dortmund
Aubameyang hefur verið orðaður við Liverpool og fleiri lið
Aubameyang hefur verið orðaður við Liverpool og fleiri lið
Mynd: Getty Images
Hans Joakim Watzke, formaður Borussia Dortmund, segir fréttaflutning af væntanlegum félagaskiptum Pierre Emerick Aubameyang vera algjört kjaftæði.

Sögusagnir fóru af stað að nýju á dögunum þegar Jorge Costa, landsliðsþjálfari Gabon, sagði Aubameyang ekki vera með landsliðinu því hann væri að ganga frá samningum við nýtt lið.

„Er Aubameyang að fara frá okkur? Nei, þessar fréttir eru algjört kjaftæði," sagði Watzke í samtali við þýska dagblaðið Bild.

Hinn skotfljóti Aubameyang er samningsbundinn Dortmund til ársins 2020 en hann skoraði 39 mörk í öllum keppnum á nýafstaðinni leiktíð.

Athugasemdir
banner
banner