Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 30. maí 2016 11:30
Magnús Már Einarsson
Aurier handtekinn
Í veseni.
Í veseni.
Mynd: Getty Images
Serge Aurier, leikmaður PSG, var handtekinn í nótt og situr nú í fangageymslum í París.

Hinn 23 ára gamli Aurier lenti í útistöðum við lögreglu þegar hann var að yfirgefa næturklúbb í nótt.

Aurier var handtekinn og settur í fangelsi.

Í febrúar síðastliðnum ákvað PSG að setja Aurier í stutt bann eftir að hann birti myndband á netinu þar sem hann gagnrýndi þjálfarann Laurent Blanc og liðsfélaga eins og Zlatan Ibrahimovic og Angel Di Maria.

PSG ætlar að bíða eftir frekari upplýsingum um atburðina í nótt áður en félagið sendir frá sér yfirlýsingu.
Athugasemdir
banner
banner
banner