„Ég tel að það sé mikilvægt að við nýtum þessa vináttuleiki sem best og vonandi komast allir heilir heilsu gegnum þá," segir Eiður Smári Guðjohnsen.
Fótbolti.net ræddi við Eið á landsliðsæfingu í Osló í dag en framundan er vináttulandsleikur gegn Noregi á miðvikudag. Eiður leikur með Molde og segir að norskir fjölmiðlamenn séu forvitnir um árangur Íslands.

„Ég hef mikið verið spurður út í hvað sé að gerast á Íslandi og hvernig við náðum þessum áfanga. Heilt yfir fylgist ég annars mjög lítið með norskum fjölmiðlum."
„Ég er í fínasta standi. Ég hef spilað mikið en í aðdraganda þessa leiks hef ég spilað aðeins minna. Það er gott að koma ferskur inn í þetta. Þessi skipti í Molde hafa spilast eins og maður setti þetta upp í rauninni. Maður vill alltaf sýna meira en heilt yfir hefur þetta verið mjög gott."
Er Eiður með það markmið að vera í byrjunarliðinu þegar Ísland leikur sinn fyrsta leik á EM, gegn Portúgal 14. júní?
„Ég er ekki búinn að hugsa það langt. Ég tek því hlutverki sem mér er gefið og verð tilbúinn eins og allir aðrir," segir Eiður.
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir