„Það er ofboðslega sterkt hjá okkur að vinna Stjörnuna sem er með gríðarlega sterkt lið," sagði Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Blika, eftir 3-1 sigur liðsins á Stjörnunni í kvöld. Gunnleifur átti stórleik í kvöld.
„Ég er mjög kátur með mína frammistöðu en strakarnir unnu mikla vinnu. Þú vinnur ekki lið eins og Stjörnuna nema allir skili góðri vinnu. Þetta var sigur liðsheildarinnar."
„Ég er mjög kátur með mína frammistöðu en strakarnir unnu mikla vinnu. Þú vinnur ekki lið eins og Stjörnuna nema allir skili góðri vinnu. Þetta var sigur liðsheildarinnar."
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Breiðablik
Íslenska landsliðið er þessa dagana að undirbúa sig fyrir EM en Gunnleifur var ekki valinn í lokahópinn.
„Ég var mjög leiður yfir því að vera ekki valinn en lífið heldur áfram. Fólk verður fyrir áföllum í lífinu og þetta er ekki stærsta áfallið sem ég hef orðið fyrir í lífinu."
„Ég reyni að standa mig vel fyrir Breiðablik og líður vel. Ég óska strákunum ofboðslega góðs gengis. Þeir eru með frábæra markverði í sínum hóp og þeir eiga eftir að stand sig vel."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir