„Við tökum með okkur það að við vorum frábærir í dag, aftur.“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eftir jafntefli sinna manna við Fjölni í kvöld.
„Maður er náttúrulega hundsvekktur, við eigum að vera löngu búnir að ganga frá leiknum. Búnir að fá fullt af góðum færum, dauðafærum. Mér er alveg sama þó það væri bara einn [sem getur skorað mörk] bara ef við skorum úr færunum.
„Það gengur ekki að fá á sig tvö mörk í leik þar sem þú yfirspilar andstæðinginn [...] maður er hálf orðlaus og svekktur.“
En hvað er það sem vantar upp á hjá Fylki?
„Skora.“
Athugasemdir