Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. maí 2016 22:19
Magnús Már Einarsson
Mynd: Blikar í landsliðinu fagna sigrinum á Stjörnunni
Sáttir með sigur Blika.
Sáttir með sigur Blika.
Mynd: Twitter
Breiðablik sigraði Stjörnuna 3-1 á útivelli í kvöld og skellti sér um leið á toppinn í Pepsi-deildinni.

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður birti mynd á Twitter í kvöld í tilefni sigursins.

Með Jóhanni á myndinni eru Sverrir Ingi Ingason og Alfreð Finnbogason, fyrrum leikmenn Breiðabliks, sem og Gunnar Gylfason, starfsmaður KSÍ og Bliki.

Íslensku landsliðsmennirnir eru í Noregi að undirbúa sig fyrir vináttuleik á miðvikudag.

Siggi Dúlla, liðsstjóri landsliðsins og Stjörnunnar, er að sjálfsögðu einnig í ferðinni með landsliðinu og Jóhann þakkaði honum fyrir leikinn eins og sjá má hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner