Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. maí 2016 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Akinfenwa í geggjuðu viðtali - Óskar eftir vinnu
Akinfenwa er einn sá skemmtilegasti
Akinfenwa er einn sá skemmtilegasti
Mynd: Getty Images
Adebayo Akinfenwa, framherji AFC Wimbledon, er líklega stærsta stjarnan í neðri deildunum á Englandi.

Akinfenwa er hvað þekktastur fyrir að vera sterkasti leikmaður í heimi, en hann er tröll að burðum.

Hann var á skotskónum í dag þegar lið hans Wimbledon tryggði sér sæti í ensku C-deildinni með 2-0 sigri á Plymouth.

Samningur Akinfenwa hjá Wimbledon er að líða undir lok og ákvað leikmaðurinn því að skora á knattspyrnustjóra að semja við sig í viðtali eftir leik.

Sjón er sögu ríkari, en viðtalið við leikmanninn sterka má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner