„Þetta er virkilega súrt," sagði Þorri Geir Rúnarsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir 3-1 tap gegn Blikum í kvöld.
Breiðablik fór á toppinn með sigrinum, en fyrir lekinn var Stjarnan á toppnum og hafði ekki tapað leik. Það breyttist í kvöld.
Breiðablik fór á toppinn með sigrinum, en fyrir lekinn var Stjarnan á toppnum og hafði ekki tapað leik. Það breyttist í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Breiðablik
„Við missum þetta svolítið niður eftir sirka 60-70 mínútur þannig að þeir setja á okkur fyrsta markið. Við reynum þá að fara aðeins framar á þá og þá slitnar dálítið á milli okkar og við fáum annað mark á okkur í kjölfarið. Þá er þetta orðið svolítið erfitt."
„Við settum þó á þá og við höfðum trú á þessum. Við hefðum getað jafnað þetta með smá heppni, en við fáum síðan mark í andlitið þar sem við erum komnir mjög hátt á völlinn."
Stjarnan fékk svo sannarlega tækifæri til þess að skora á Blikana, en Þorri Geir segir að það komi svona dagar inn á milli þar sem ekkert fer inn.
„Það koma svona dagar þar sem fer ekkert inn, en við eigum þetta bara inni seinna í mótinu."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir