Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mán 30. maí 2016 21:58
Magnús Þór Jónsson
Þorsteinn: Við erum heppnir með stuðningsmenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Már Ragnarsson fór af Stjörnuvellinum á fimmtudag með nefið út á kinn og hafði misst mikið af blóði en var mættur í slaginn í kvöld í Krikanum.

"Ég var bara heppinn að nefið brotnaði ekki og glóðaraugað var miklu minna en ég bjóst við, svo ég var bara heppinn".

Hann var sáttur við niðurstöðu kvöldsins og stigið sem fór vestur á Snæfellsnes í kvöld.

"Við komum ekki alveg til leiks í fyrri hálfleik en náðum okkur á strik í þeim síðari, áttum flott upphlaup og Tokic kláraði vel."

Fullt af fólki fylgdi liðinu í þennan leik, enda Kaplakriki sennilega uppáhalds útivöllur bláa hersins af nesinu.

"Við erum rosalega heppnir með stuðningsmennina okkar, þeir koma alltaf til að hjálpa okkur og styðja okkur hvernig sem gengur.  Þó við höfum ekki verið góðir hérna á tímabili í dag voru þeir að hvetja okkur allan tímann og við erum með flotta stuðningsmenn".

Nánar er rætt við Þorstein í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir
banner