Ejub var afskaplega ánægður með að vera kominn á sigurbraut.
"Það er vissulega léttir að vera búinn að ná sigri. Það er oft erfitt þegar þú spilar leik eftir leik og ert ekki verri aðilinn en færð ekkert svo vissulega er það andlega mjög gott."
"Það er vissulega léttir að vera búinn að ná sigri. Það er oft erfitt þegar þú spilar leik eftir leik og ert ekki verri aðilinn en færð ekkert svo vissulega er það andlega mjög gott."
Ejub var ekki ánægður með gæði fyrri 45 mínútnanna í Ólafsvík.
"Mér fannst fyrri hálfleikur nánast ekki boðlegur í Úrvalsdeildinni! Ég ætla að vera alveg hreinskilinn, þetta var taugastríð og leikmenn þorðu minna að gera. En seinni hálfleikur og mér fannst við allan tímann vera betri, sérstaklega fram að marki en þá fórum við aðeins að detta niður."
Björn Pálsson spilaði seinni hálfleik haltrandi fyrir málsstaðinn.
"Já, hann fékk smá teip í hálfleik. Hann þarf bara að venjast því vera í Ólafsvík og vera harður af sér" sagði þjálfarinn með feitu glotti. Kiko Insa var borinn útaf og Ejub hafði áhyggjur af því.
"Hann fékk rosalegt högg og stór kúla komin við hnéð á honum en það er of snemmt að segja til um hvað það er".
Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir fréttinni, m.a. um framhaldið í deildinni.
Athugasemdir