Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   sun 30. júní 2013 23:02
Magnús Þór Jónsson
Gummi Magg: Þetta var fáránlegur léttir!
Vissum að við gætum unnið Skagann
Mynd: Björn Ingvarsson
Guðmundi Magnússyni, hetja Víkinga í kvöld, var létt í kvöld!

"Þetta var fáránlegur léttir, það var stiginn stríðsdans í búningsklefanum eftir leik."

Guðmundur sagði heimamenn hafa haft trú á sér þrátt fyrir dapurt gengi hingað til í sumar.

"Við sýndum það í bikarnum gegn Fram að við erum með gott lið, svo fórum við í Frostaskjól og spiluðum vel svo við vorum vissir um að við gætum unnið Skagann."

Hann var viss um að það yrði einfaldara að sofna eftir þennan leik en oft áður.

"Það er yfirleitt erfitt að sofna eftir leiki en núna held ég að maður sofni strax."

Stutt er á milli leikja, Fylkismenn koma vestur á miðvikudag.

"Þessi sigur gefur okkur innspýtingu. Við vitum það að ef við klárum þann leik þá erum við í fínum málum þegar kemur að seinni umferðinni."

Frekar er spjallað við Guðmund í viðtalinu sem fréttinni fylgir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner