Miðvörðurinn Raul Albiol, leikmaður Napoli, er sagður vera aðalskotmark síns gamla félags Valencia í sumar.
Þeir Shkodran Mustafi og Nicolas Otamendi hafa báðir verið sterklega orðaðir við brottför frá Valencia og eru forráðamenn félagsins því farnir að leita að arftökum þeirra.
Þeir Shkodran Mustafi og Nicolas Otamendi hafa báðir verið sterklega orðaðir við brottför frá Valencia og eru forráðamenn félagsins því farnir að leita að arftökum þeirra.
Albiol er uppalinn hjá Valencia en var seldur til Real Madrid árið 2009. Þar var hann í fjögur ár áður en Rafael Benitez fékk hann til Napoli fyrir tveimur árum.
Albiol verður þrítugur síðar á árinu og er Napoli sagt reiðubúið til að hlusta á tilboð í hann.
Athugasemdir