Bertolacci átti frábært tímabil hjá Genoa og gerir sterkt tilkall til byrjunarliðssætis í ítalska landsliðinu.
Andrea Bertolacci er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við AC Milan og kostar félagið 20 milljónir evra, eða 14 milljónir punda.
Bertolacci átti frábært tímabil hjá Genoa, sem átti helming í leikmanninum ásamt Roma á síðasta tímabili.
Bertolacci átti frábært tímabil hjá Genoa, sem átti helming í leikmanninum ásamt Roma á síðasta tímabili.
Miðjumaðurinn vann sig inn í ítalska landsliðið og keypti Roma helming leikmannsins frá Genoa í sumar á 8 milljónir evra, eða 5.5 milljónir punda.
„Ég er kominn í mjög mikilvægt félag og hlakka til að byrja að æfa," sagði Bertolacci við Milan Channel.
„Milan hefur alltaf verið draumaáfangastaður fyrir mig. Það er mikilvægt verkefni í gangi hérna og mikill sigurvilji eftir erfitt tímabil."
Athugasemdir