Heimild: BBC
Varnarmaðurinn Aaron Cresswell hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning hjá West Ham.
Cresswell kom til West Ham frá Ipswich fyrir ári síðan og var hann valinn leikmaður ársins hjá félaginu í vetur. Spilaði hann alla 38 deildarleikina í vetur í stöðu vinstri bakvarðar og skoraði tvö mörk.

Nýji samningurinn gildir til ársins 2020 og er hann með möguleika á framlengingu um önnur tvö ár.
West Ham er að byggja upp spennandi lið og hefur fengið til sín þá Dmitri Payet og Pedro Obiang í sumar eftir að Króatinn Slaven Bilic tók við félaginu fyrir skömmu. Þá mun liðið flytja á Ólympíuleikvanginn í Lundúnum á næsta ári.
Athugasemdir