Ítalska félagið Inter vill fá brasilíska miðjumanninn Lucas Leiva frá Liverpool. Lucas var einnig orðaður við Inter í fyrra.
Roberto Mancini, stjóri Inter, ku vera mikill aðdáandi Lucas. Mateo Kovacic, miðjumaður Inter, hefur einmitt verið orðaður við Liverpool og spurning hvort einhvers konar skiptidíll verði framkvæmdur.
Inter vildi fá franska miðjumanninn Giannelli Imbula frá Marseille en hann er á leið til Porto.
Það er nóg að gera á skrifstofum Inter en Mancini hefur einnig áhuga á að fá belgíska vængmanninn Dries Mertens frá Napoli. Það er ansi hár verðmiði á leikmanninum og setur það strik í reikninginn.
Athugasemdir