Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. júní 2015 22:29
Ívan Guðjón Baldursson
Móðir Sergio Ramos: Hann er ekki að fara frá Madríd
Sagan endalausa heldur áfram.
Sagan endalausa heldur áfram.
Mynd: Getty Images
Móðir Sergio Ramos segir son sinn ekki vera á förum frá Real Madrid, ef marka má viðtal við konu sem er sögð vera móðir varnarmannsins.

Ramos hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarnar vikur og var sagður, af helstu fjölmiðlum Evrópu, heimta brottför frá spænsku höfuðborginni.

Ramos er 28 ára gamall og er talinn vera einn af bestu miðvörðum heims. Miklar sögusagnir hafa verið í gangi um gang mála innan herbúða Real og er Iker Casillas einnig sagður vera á för frá félaginu.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan og hefur það verið spilað rúmlega 500 þúsund sinnum frá birtingu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner