Heimild: Mirror
Bosníumaðurinn Miralem Pjanic, leikmaður Roma, vill ólmur fá samlanda sinn Edin Dzeko til félagsins.
Dzeko er í dag samningsbundinn Manchester City, en framtíð hans er í mikilli óvissu þar sem hann náði ekki að sýna sitt besta í vetur. Hann er á háum launum hjá City og er ljóst að hann þarf að taka á sig launalækkun ef hann vill skipta um félag.

„Dzeko ætti að koma hlaupandi til Rómar og launin hér eru ekkert vandamál. Þetta veltur samt allt á félaginu," sagði Pjanic.
Dzeko á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá City.
Athugasemdir