Brasilíumaðurinn Ronaldinho, fyrrum besti leikmaður heims, er á leið til tyrkneska félagsins Antalyaspor.
Þetta staðfesti forseti félagsins í gær, en hann birti þar myndband af Ronaldinho að færa stuðningsmönnum liðsins kveðju.
Þetta staðfesti forseti félagsins í gær, en hann birti þar myndband af Ronaldinho að færa stuðningsmönnum liðsins kveðju.
Samuel Eto'o er einnig á leið til félagsins, en tvímenningarnir voru eitraðir saman hjá Barcelona á árum áður og unnu allt sem í boði var í Evrópuboltanum.
Hinn 35 ára gamli Ronaldinho yfirgaf nýlega Queretaro í Mexíkó, en hann lék þar áður með Atletico Mineiro og Flamengo í heimalandi sínu.
Athugasemdir