þri 30. júní 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Swansea í viðræðum við miðjumann Atalanta
Luca Cigarini.
Luca Cigarini.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Luca Cigarini, miðjumanns Atalanta, hefur staðfest að enska félagið Swansea vilji fá leikmanninn í sínar raðir.

Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að viðræður milli félagana hafi átt sér stað og hafa forráðamenn welska liðsins einnig rætt við umboðsmann leikmannsins.

Swansea hefur hringt nokkrum sinnum og hafa virkilega mikinn áhuga á að kaupa hann. Ef við náum samkomulagi, þá verður hann mjög ánægður með að fá tækifæri í ensku deildinni," sagði Giovanni Bia, umboðsmaður Cigarini.

Cigarini er 29 ára gamall og á að baki 66 leiki með Atalanta. Hann hefur einnig leikið með Sevilla og Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner