Íslenskir dómarar eru að fá úthlutuð verkefni í Evrópu um þessar mundir en undankeppnin fyrir Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina eru að fara af stað.
Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik AUK Broughton FC frá Wales og NK Lokomotiva Zagreb frá Króatíu þann 2. júlí í Evrópudeildinni.'
Áskell Þór Gíslason og Björn Valdimarsson eru aðstoðardómarar og Erlendur Eiríksson verður fjórði dómari.
Þá mun Gunnar Jarl Jónsson dæma leik Solna frá Svíþjóð og VPS Vaasa frá Finnlandi í Evrópudeildinni.
Með Gunnari verða Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson aðstoðardómarar. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður fjórði dómari. Leikurinn fer fram í Svíþjóð þann 9. júlí.
Athugasemdir