Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. júní 2015 13:30
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í Cardiff 2017
Millennium Stadium í Cardiff.
Millennium Stadium í Cardiff.
Mynd: Getty Images
Þúsaldarleikvangurinn í Cardiff verður vettvangur úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu árið 2017 en UEFA hefur staðfest þetta.

Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna verður tveimur dögum áður á heimavelli Cardiff City.

Þúsaldarleikvangurinn tekur 74.500 áhorfendur en þar voru úrslitaleikirnir í FA-bikarnum og deildabikarnum 2001-2006 meðan Wembley var í endurbyggingu

Knattspyrnusamband Wales fagnar þessum fréttum en sambandið hefur lengi unnið að því að fá að halda úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner