Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júní 2016 21:24
Hafliði Breiðfjörð
2. deild karla: Birgir Freyr tryggði Aftureldingu sigur
Birgir Freyr Ragnarsson skoraði eina markið í Njarðvík i kvöld.
Birgir Freyr Ragnarsson skoraði eina markið í Njarðvík i kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn leikur var á dagskrá í 2. deild karla í kvöld þar sem topplið Aftureldingar sótti Njarðvík heim suður með sjó.

Gestirnir fóru með sigur af hólmi en Birgir Freyr Ragnarsson skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu.

Liðið er þá komið með 20 stig og fjögurra stiga forskot á ÍR á toppi deildarinnar en Breiðhyltingarnir eiga leik til góða.

Njarðvík er í 6. sæti með 11 stig.

Njarðvík 0 - 1 Afturelding
0-1 Birgir Freyr Ragnarsson ('18)
Athugasemdir
banner