Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júní 2016 13:44
Þorsteinn Haukur Harðarson
Aron Einar tók ekki fullan þátt í æfingu Íslands
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson tók ekki fullan þátt í æfingu íslenska liðsins í Annecy í dag

Æfing liðsins var opin fyrstu 30 mínúturnar en á þeim tíma voru flestir leikmenn í hefbundinni upphitun.

Aron Einar ræddi hinsvegar við læknateymi liðsins á milli þess sem hann tók létt skokk.

Aron hefur verið að glíma við meiðsli í nára og var um tíma óttast að hann myndi jafnvel missa af einhverjum leikjum á EM.

Hann hefur hinsvegar byrjað alla leiki íslenska liðsins og má búast við því að hann verði klár í slaginn gegn Frökkum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner