Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 30. júní 2016 09:48
Magnús Már Einarsson
Birkir Bjarna: Flestir eru vanir þessari athygli
Icelandair
Birkir í leiknum gegn Englendingum.
Birkir í leiknum gegn Englendingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum búnir að taka því rólega og reyna að einbeita okkur að endurheimtinni. Það er nauðsynlegt eftir þennan leik," sagði Birkir Bjarnason við fjölmiðla í dag.

Birkir átti mjög góðan leik í 2-1 sigrinum á Englendingum á mánudagskvöld.

„Ég held að það hafi verið besti leikur okkar í langan tíma. Við spiluðum gríðarlega vel í 93 mínútur. Við sýndum að við getum haldið bolta og spilað góðan bolta á móti góðum liðum."

Íslenska liðið hefur fengið gríðarlega mikla umfjöllun um allan heim eftir sigurinn á Englandi. „Flestir eru vanir þessari athygli. Þó að það sé miklu meira af fólki hérna en síðustu daga þá er það energy boost," sagði Birkir og vísaði í þann mikla fjölda fjölmiðlamanna sem voru á æfingasvæði Íslands í Annecy í dag.

Næsta verkefni Íslands er á sunnudag þegar liðið mætir Frökkum í 8-liða úrslitum EM.

„Þeir eru með gríðarlega góða einstaklinga og við þurfum að vera með allt á hreinu ef við ætlum að fá eitthvað úr þeim leik. Við byrjum að leikgreina þá í kvöld og verðum klárir."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner