Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júní 2016 14:17
Þorsteinn Haukur Harðarson
Costa gæti snúið aftur til Atletico Madrid
Mynd: Getty Images
Framherjibb Diego Costa gæti verið á förum frá enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea. Leikmaðurinn er orðaður við sitt gamla félag, Atletico Madrid.

Atletico er sagt tilbúið að borga 35 milljónir fyrir Costa en sjálfur hefur leikmaðurinn lýst yfir áhuga á að snúa aftur til Madrídar.

Costa kom til Chelsea fyrir tveimur árum og hefur síðan þá skorað 36 mörk fyrir félagið.

Chelsea er að kaupa belgíska framherjann Michy Batshuayi frá Marseille og það gæti orðið til þess að Costa fái að fara aftur til Spánar.
Athugasemdir
banner
banner