Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. júní 2016 10:10
Elvar Geir Magnússon
Annecy
Erlendir fjölmiðlar berjast um fréttir af strákunum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Mikill fjöldi erlendra fréttamanna hefur hreiðrað um sig í Annecy til að fylgjast með íslenska landsliðinu og er pakkfullt í fjölmiðlarýminu við æfingavöllinn þar sem þessi frétt er skrifuð.

Nokkrir leikmenn Íslands voru í boði til viðtals fyrir æfingu sem nú stendur yfir og voru franskir fjölmiðlar mjög áberandi og aðgangsharðir.

Einnig má finna fjölmiðlamenn frá Spáni, Ítalíu, Svíþjóð, Noregi og fleiri löndum.

Sögur eru um að nokkrir fréttamenn hafi reynt að komast að hótelinu þar sem íslenska landsliðið dvelur.

Reglur um aðgengi að íslenska liðinu hafa verið hertar og mega myndatökumenn til að mynda ekki lengur vera á hlaupabrautinni við æfingavöllinn þegar æfingar eru opnar.

Fótbolti.net sendi út í beinni frá æfingasvæðinu á Facebook í dag og má sjá upptökuna hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner