Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. júní 2016 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Newcastle kaupir belgískan markvörð (Staðfest)
Rafa er byrjaður að versla
Rafa er byrjaður að versla
Mynd: Getty Images
Enska B-deildarliðið Newcastle United hefur fest kaup á belgíska markverðinum Matz Sels.

Sels er 24 ára gamall og kemur til Newcastle frá belgíska úrvalsdeildarliðinu Gent en hann spilaði með Gent í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og var valinn markvörður ársins í Belgíu.

Þetta eru fyrstu kaup Rafa Benitez í sumar og gerir Sels fimm ára samning við Newcastle sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Kaupverðið er talið vera í kringum 5 milljónir punda en hjá Newcastle mun Sels berjast við Tim Krul, Karl Darlow og Rob Elliott um markvarðarstöðuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner