Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júní 2016 23:19
Arnar Daði Arnarsson
Óli Jó kannast ekkert við nýja leikmann Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skive IK í Danmörku tilkynnti á vef sínum í kvöld að hægri bakvörðurinn Andreas Albech sé genginn í raðir Vals.

Við greindum síðan frá þessu hér á síðunni fyrir skömmu. Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals var spurður út í þessi mál eftir Evrópuleikinn gegn Bröndby í kvöld. Ólafur kannaðist ekkert við þessar fregnir.

„Ég hef ekki séð það ennþá," sagði Ólafur sem síðan var spurður að því hvort hann þekkti ekki til nafnsins, Andreas Albech frá Skive?

„Ég hef ekki heyrt hann nefndan," sagði Ólafur að lokum.

Viðtalið við Óla má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner