Flestir knattspyrnuáhugamenn eru spenntir fyrir komu Zlatan Ibrahimovic í enska boltann. Stuðningsmenn annara liða virðast þó hafa áhyggjur af næsta vetri.
Einn þeirra er breski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan en hann er harður aðdáandi Arsenal og er duglegur að gagnrýna kaupstefnu félagsins á Twitter.
Benti hann á þá staðreynd að Zlatan fari til Man. Utd nokkrum dögum eftir að Jamie Vardy hafnaði Arsenal.
United sign Zlatan, Arsenal fail to sign Vardy.
— Piers Morgan (@piersmorgan) June 30, 2016
Says it all.. #afc
Athugasemdir