Enski landsliðsmaðurinn Wayne Rooney er farinn í snemmbúið sumarfrí eftir að England datt úr leik á EM með tapi gegn Íslandi fyrr í vikunni.
Eftir að enska landsliðið snéri heim til Englands staldraði Rooney ekki lengi við því hann flaug ásamt konu sinni til Ibiza þar sem hann mun eflaust reyna að gleyma viðburðum seinustu daga.
Eftir sumarfríið mun hann síðan hefja æfingar hjá félagsliði sínu, Manchester United.
Athugasemdir