Víðir Sigurðsson, íþróttaritstjóri Morgunblaðsins, er staddur í Annecy og hefur gert Evrópumótinu góð skil. Við ræddum við Víði á æfingavelli Íslands í morgu og má sjá viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Það braust út gríðarlegur fögnuður í fréttamannastúkunni eftir sigurinn gegn Englandi eins og sjá má hér að neðan og því vel við hæfi að byrja á því að spyrja Víði hvort hann hafi jafnað sig eftir sigurinn?
Það braust út gríðarlegur fögnuður í fréttamannastúkunni eftir sigurinn gegn Englandi eins og sjá má hér að neðan og því vel við hæfi að byrja á því að spyrja Víði hvort hann hafi jafnað sig eftir sigurinn?
„Þetta er að komast í eðlilegt horf. Þetta hefur verið ótrúlegur tími síðan flautað var af Nice. Það rann víma á alla og hún rennur í fyrsta lagi af mönnum síðasta sunnudagskvöld," segir Víðir.
„Sigurinn gegn Englandi var besti leikur liðsins í keppninni hingað til. Við vissum að liðið gæti haldið boltanum gegn sterkum andstæðingum. Það var meira sjálfsöryggi í liðinu en í hinum leikjum mótsins."
Víðir er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Frökkum í 8-liða úrslitum.
„Þú færð ekki sterkari andstæðing en heimaþjóðina. Hér í Frakklandi er gert ráð fyrir því að Frakkland verði Evrópumeistari. Það verður ævintýraleg stemning á Stade de france á sunnudagskvöld."
„Það eru forréttindi að fá að vera hérna. Þetta er mesta upplifun sem maður hefur gengið í gegnum á löngum ferli í þessu og megi hún endast sem lengst," segir Víðir Sigurðsson.
Athugasemdir