Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 30. júlí 2014 09:39
Magnús Már Einarsson
Andri Björn í Selfoss (Staðfest)
Andri Björn Sigurðsson.
Andri Björn Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Selfoss hefur fengið framherjann Andra Björn Sigurðsson í sínar raðir frá Þrótti.

Andri Björn hefur leikið með Þrótti undanfarin tvö ár en í sumar hefur hann skorað þrjú mörk í tólf deildar og bikarleikjum með liðinu.

Í fyrra skoraði Andri ellefu mörk með Þrótturum í 1. deildinni og bikarnum.

Andri Björn, sem er 24 ára gamall, hefur einnig leikið með ÍR og Gróttu undanfarin ár.

Andri er kominn með leikheimild með Selfyssingum en hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn sínum gömlu félögum í Þrótti í 1. deildinni í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner