Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 30. júlí 2014 21:30
Grímur Már Þórólfsson
Heimild: Soccernet 
Bertrand til Southampton (Staðfest)
Bertrand á að leysa Luke Shaw af
Bertrand á að leysa Luke Shaw af
Mynd: Getty Images
Southampton hefur tilkynnt að Ryan Bertrand hafi gengið til liðs við félagið á láni út tímabilið frá Chelsea.

Bertrand var á láni hjá Aston Villa í fyrra en þar spilaði hann 14 leiki í úrvalsdeildinni. Núna mun hann leysa Luke Shaw af en hann fór til Manchester United.

Southampton hefur selt marga leikmenn í sumar og má þar helst nefna: Shaw, Chambers, Lallana, Lambert og Lovren og þá gætu Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin verið á förum.

Þeir vinna því hörðum höndum að fá leikmenn í þeirra stað en þeir höfðu keypt Dusan Tadic og Graziano Pelle og nú bætist Bertrand við hópinn.
Athugasemdir
banner
banner