Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mið 30. júlí 2014 20:43
Gunnar Birgisson
Bjarni Jó: Nýttum ekki þessa yfirburði sem við vorum með
Bjarni var sprækur
Bjarni var sprækur
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Bjarni Jóhannesson þjálfari KA var langt því frá að vera sáttur með stigið gegn HK eftir 1-1 jafntefli í Kórnum í leik sem lauk rétt í þessu.

KA menn voru með yfirhöndina mest allan leikinn og fengu mörg fín færi en inn vildi boltinn ekki.

Lestu um leikinn: HK 1 -  1 KA

,,Við vorum bara miklu betri, það var bara ósköp einfalt, en við getum svosem sjálfum okkur um kennt við nýttum ekki færin sem við fengum," sagði Bjarni í viðtali við Fótbolta.net.

Aðspurður hvað fór úrskeiðis og hvers vegna svona mörg færi fóru forgörðum sagði Bjarni:
,,Þú verður að spurja þessa drengi, sérstaklega hérna í lokin fengum við færi bara trekk í trekk þannig það hefði verið ljúft að landa þremur stigum í þessari baráttu sem við erum í. En eins og ég segi, við nýttum ekki færin og nýttum ekki þessa yfirburði sem við vorum með."

Nú fer Verslunarmannahelgi að nálgast og var Bjarni í engum vafa með hvaða ráðstafanir skyldi gera fyrir næstkomandi helgi.
,,Þeir fara bara og skemmta sér einhvers staðar svo koma þeir bara á æfingu á mánudag."
Athugasemdir
banner
banner