Eiður Smári Guðjohnsen æfði í morgun með danska úrvalsdeildarliðinu OB en danskir fjölmiðlar greina frá þessu.
Þjálfari OB, Troels Bech, segir að Eiður sé þó ekki á leið í raðir félagsins heldur fái hann að æfa til að halda sér í standi. Þessi fyrrum leikmaður Barcelona og Chelsea er í Danmörku að fylgjast með syni sínum spila fyrir U17 landslið Íslands sem tekur þátt í Norðurlandamótinu.

OB er án stiga eftir tvær umferðir í dönsku úrvalsdeildinni og gæti vel notað hæfileika Eiðs til að hrista upp í sóknarleik sínum.
Eiður verður 36 ára í september en hann er án félags. Síðast var hann á mála hjá Cercle Brugge í Belgíu.
Athugasemdir