Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. júlí 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Halldór Orri í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir hefur fengið miðjumanninn Halldór Orra Hjaltason í sínar raðir frá Þór.

Halldór Orri hefur komið við sögu í átta leikjum hjá Þórsurum í Pepsi-deildinni í sumar.

Þessi 21 árs gamli leikmaður þekkir til hjá Dalvík/Reyni en hann var á láni hjá liðinu síðari hlutann á síðasta tímabili.

Í síðustu viku fékk Dalvík/Reynir einnig bakvörðinn Kristján Frey Óðinsson á láni frá KA.

Dalvík/Reynir er í 5. sæti í 2. deild karla í augnablikinu en liðið fær topplið Fjarðabyggðar í heimsókn í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner