Everton hefur keypt framherjann Romelu Lukaku frá Chelsea á 28 milljónir punda en þetta var staðfest á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
Lukaku er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Everton en Marouane Fellaini var áður dýrastur eftir að hann kom til félagsins á 15 milljónir punda árið 2008.
Lukaku skoraði sextán mörk þegar hann var á láni hjá Everton á síðasta tímabili.

Þessi 21 árs gamli leikmaður var einnig í láni hjá WBA á þarsíðasta tímabili en hann hefur nánast ekkert spilað með Chelsea síðan félagið keypti hann frá Anderlecht á tíu milljónir punda árið 2011.
Lukaku mun klæðast treyju númer 10 hjá Everton.
Athugasemdir