KA hefur fengið Viktor Örn Guðmundsson á láni frá Fylki út tímabilið.
Viktor Örn kom til Fylkis frá FH síðastliðið haust en hann er uppalinn hjá Fimleikafélaginu.
Í sumar hefur Viktor spilað átta leiki í Pepsi-deildinni en hann hefur ekkert komið við sögu undanfarnar vikur.
Viktor er 24 ára gamall en hann getur leikið bæði í vinstri bakverði, á kanti sem og á miðjunni.

Viktor gæti spilað sinn fyrsta leik með KA í kvöld þegar liðið mætir HK í Kórnum.
Athugasemdir