Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 30. júlí 2015 20:31
Alexander Freyr Tamimi
Hólmbert Aron: Smá blóðnasir
Hólmbert fékk blóðnasir í kvöld og skoraði stuttu síðar.
Hólmbert fékk blóðnasir í kvöld og skoraði stuttu síðar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji KR, átti flottan leik í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur gegn ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins í vesturbænum.

Hólmbert skoraði tvö fyrstu mörk KR, bæði í fyrri hálfleik, en hann er tiltölulega nýkominn til liðsins frá Celtic. Hann fékk sénsinn í byrjunarliðinu í kvöld og nýtti hann heldur betur. Var hann að vonum ánægður með sigurinn.

Lestu um leikinn: KR 4 -  1 ÍBV

„Flottur leikur og flottur sigur. Hefðum viljað halda hreinu en svona er þetta og við erum komnir í úrslit, það er mjög gott," sagði Hólmbert eftir sigurinn.

„Við náðum inn fyrsta markinu sem kom loksins og ég held að það hafi svolítið gefið okkur forskot í leiknum. Þetta var svolítið þægilegt eftir það."

Hólmbert fékk dágott högg í andlitið í fyrri hálfleik og þurfti að fara af velli til að fá aðhlynningu.

„Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist, ég lendi í einhverjum árekstri og síðan fékk ég eitthvað í andlitið. Ég veit ekki hvað hitti mig í andlitið, smá blóðnasir og eitthvað, en það lagaðist."

Viðtalið við Hólmbert má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner