Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júlí 2015 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Mætti með Fanta Lemon á æfingu
Gulli með Fanta Lemon á æfingunni.
Gulli með Fanta Lemon á æfingunni.
Mynd: Aðsend
Þeir sem hafa fylgst með Gunnleifi Gunnleifssyni á Twitter hafa væntanlega tekið eftir að markvörðurinn reyndi er mikill Fanta Lemon aðdáandi.

Hefur hann undanfarið kallað eftir drykknum til Íslands og Henrý Birgir, íþróttafréttamaður, hefur tekið hraustlega undir og hvöttu þeir félagar Vífilfell nýverið til að koma drykknum á markað og það sem fyrst.

Skemmst er frá því að segja að Vífifell brást skjótt við óskum drengjanna og nú er drykkurinn kominn í hillur verslana, mörgum væntanlega til mikillar ánægju.

Það vakti hins vegar athygli okkar hér á Fótbolti.net að Gunnleifur sást með Fanta Lemon á æfingu hjá Breiðabliki eftir stórleik Blika og KR í Frostaskjólinu.

Í léttu spjalli sagðist Gunnleifur ekki hafa getað staðist mátið í veðurblíðunni í Kópavogi.

„Ég bara varð að koma við í búðinni og grípa með mér flösku á leiðinni á æfingu enda er um takmarkað magn að ræða og því um að gera að njóta á meðan tækifæri gefst,“ sagði Gunnleifur en viðurkenndi um leið að hann mætti alla jafna ekki með gosdrykki á æfingar enda leggi hann mikla áherslu á að borða hollt og drekka mikið vatn þar sem mikið álag fylgi því að vera markvörður í efstu deild á Íslandi og vera í landsliðsklassa í besta knattspyrnulandsliði sem Ísland hefur átt.

Þegar við spurðum Gulla hvað Adda Grétars fyndist um þetta svaraði hann bara: „Uss“.
Athugasemdir
banner
banner
banner