Tyrkneska félagið Besiktas hefur fengið þýska framherjann Mario Gomez á láni frá Fiorentina.
Honum er ætlað að fylla skarð Demba Ba sem yfirgaf Besiktas fyrir Shanghai Shenhua en Ba skoraði 18 mörk í tyrknesku deildinni á síðustu leiktíð.
Fiorentina keypti Gomez frá Bayern Munchen fyrir tveimur árum síðan og borgaði 20 milljónir evra fyrir.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Gomez á Ítalíu en hann skoraði 14 mörk 47 leikjum með Fiorentina.
Athugasemdir