Spænska íþróttablaðið Marca segir í dag að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær Manchester United kaupir Pedro frá Barcelona.
Marca segir að samningaviðræðum á milli félaganna sé að ljúka en kaupverðið verður einhversstaðar á bilinu 17-21 milljón punda.
Marca segir að samningaviðræðum á milli félaganna sé að ljúka en kaupverðið verður einhversstaðar á bilinu 17-21 milljón punda.
Pedro er ekki sáttur með tækifæri sín hjá Barcelona og því er hann opinn fyrir því að fara frá félaginu.
Luis Enrique, þjálfari Börsunga, vill ekki missa Pedro en samkvæmt frétt Marca verður það þó líklega raunin.
Athugasemdir